Niðurstaðan komin!

Nú ætla ég að segja ykkur hvernig niðurstaðan verður - þeir sem nenna ekki að bíða til 2010 - eða var það 2020?

Hún verður svona:
,,Mikilvægt er að tryggja að Ísland verði áfram „best í heimi“ –
land sem býður þjóð sinni mestu lífsgæði sem völ er á.” (!)
Svo er þessi klausa, sem “nýja” nefndin ætti kannski að athuga, aðallega
síðustu setninguna:
,,Þeir þættir, sem byggja upp einkenni þjóðar, eru meðal annars aðgerðir
ríkisstjórnar, menningin, vörur og þjónusta ásamt tungumálinu. Þetta eru
þau einkenni sem þjóðin telur rétt að sýna umheiminum og þau loforð sem
þau fela í sér. Um slík einkenni eða loforð verður að vera góð samstaða
og framtíðarsýnin þarf að vera skýr.
Þurfa þau að grundvallast á því sem þjóðin og landið stendur í raun og
veru fyrir því annars verður fljótt holur hljómur í skilaboðunum.”
Holur hljómur?
,,Það er verðugt og mikilvægt verkefni að reyna að hafa áhrif á, bæta og
viðhalda ímynd þjóðar. Ekki má beygja snögglega af leið né fara of seint
af stað í slíka vinnu því ef neikvæð mynd hefur byggst upp af landi og
þjóð er erfitt að bæta hana."

,,Undirstaða samfélagsins er að allir búi við frelsi, mannréttindi og efni
til að njóta hæfileika sinna og ráða eigin lífi."

Semsagt: "allir".

,,Veik ímynd Íslands, innanlands sem utan, felur í sér vanþekkingu
hagsmunaaðila á einkennum og eiginleikum þjóðarinnar og hún er hættuleg
atvinnu- og efnahagslífi, hagþróun og samfélagsgerð sem Íslendingar
kjósa að búa við."

Takið eftir: hagsmunaaðila!

Svo kemur rúsínan:

,,Ímynd landsins er lítil og veik og ljóst er að gera þarf bragarbót á.
Nauðynlegt er að bæta skipulag og samræmingu aðgerða, skilgreina ábyrgð
og verja meiri fjármunum til málaflokksins. Þetta þarf að gera með þeim
aðilum sem nú þegar sinna kynningarstarfi fyrir hönd stjórnvalda og helstu
útflutningsgreina. Sjá einnig t.d. viðtal við Jón Ásgeir Jóhannesson á
forsíðu Viðskiptablaðsins 19. febrúar 2008 í grein sem ber yfirskriftina
„Við Íslendingar eigum við meiriháttar ímyndarvandmál að stríða“, en þar
segir Jón Ásgeir m.a.: „Þegar kemur að ímynd Íslands er það engin spurning
að stjórnmálamenn verða að eyða tíma í að kynna land og þjóð erlendis og
koma kannski fram meira sjálfir í stað þess að senda aðra fyrir sig.
Það þarf að virkja alla til þess, hvort sem það eru sendiráð Íslands eða
annað. Þetta er greinilegt vandamál fyrir okkur.“


mbl.is Ísland skipi sér á ný í fremstu röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gæti falist í orðinu „bindandi"?

Æ, ræfillinn! Svo urðu bara engar umræður um það hvað fælist í orðinu „bindandi", segir í skýrslunni.
Hvað gerir maður þá?
Alveg: Hvað gæti falist í orðinu „bindandi"?
Gæti það þýtt: Ekki bindandi?
Tæplega þýðir það: Bindandi - eða?
Kannski er þetta bara hollenska fyrir: Þetta reddast.
Ég vil fara heim núna. Það er svo vont að eiga í vök að verjast.
Mér langar að vera doktor do little í friði fyrir ljótum fjármálaráðherrum.
mbl.is Árni átti í vök að verjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvílík sjálfstæðisyfirlýsing!

Táknrænn gjörningur á táknrænum degi. Þessi maður taldi sig ekki hafa neinu að tapa - og slíkur maður er hættulegasti maður í heimi.

Sama dag kemur svo frétt sem í segir: ,,Leysa skal úr hugsanlegum ágreiningi vegna Icesave samnings Íslendinga og Hollendinga fyrir breskum dómstólum."Og til þess að kóróna þetta, er þetta dagurinn sem þjóðin fagnar sjálfstæði sínu í 65. sinn. Hvaða sjálfstæði? Fjárhagslegu? Þjóðréttarlegu?Nei, eitthvað er rotið á landi ísa.

Landráðastjórnin er búin að afsala fullveldi Íslands til Bretlands - í skjóli nætur, talandi um myrkraverk. Nú er ljóst hvers vegna hvorki þjóð né þing má sjá samninginn.

Í ræðu sinni í dag sagði forsætisráðherra: ,,Við verðum að koma í veg fyrir að við missum frá okkur þann mikla mannauð sem í okkur sjálfum býr og afkomendum okkar." Kæra frú, þú og þín ríkisstjórn sýnið okkur borgurunum ekki á neinn hátt að þið viljið ekki "missa" okkur. Þvert á móti - þið sparkið í hnésbætur þeirra sem standa á bjargbrúninni. Því munuð þið "missa" okkur - og það fyrr en þið haldið.

Og fyrst ég er nú að ávarpa þig beint: Í öllum bænum hlífðu fólki við því að tala við það sem "okkur" - við erum ekki í þínu liði. Hafðu skömm fyrir aðgerðarleysi, getuleysi og úrræðaleysi þinnar stjórnar.

Skömm sem nær langt út yfir enn einn örlagaríkan dag fyrir íslenska þjóð.


Hagkerfi án millistéttar

Ég skal bara segja það eins oft og þurfa þykir:
Hver heldur Steingrímur að haldi uppi "ríkinu" þegar búið er að setja millistéttina út úr jöfnunni? AGS?
Hann og Jóhanna og hinir álfarnir á Alþingi?
Þetta verður fyrsta - og síðasta - tilraun í veröldinni, til þess að reka hagkerfi án millistéttar.
Hlunkist nú til að taka þessa verðbólguvísitölu úr sambandi, þó ekki sé nema tímabundið, á meðan heimilin berjast í bökkum við að eiga fyrir mat, hvað þá bensíni og búsi.
Það gengur einfaldlega ekki upp að ætla að hækka skuldir fólks núna og það á þennan líka lúalega hátt, að sjálfvirk hækkun lána fylgi þessari nýjustu hækkun neysluverðs.
Hvert er ykkar markmið, gott fólk? Að ganga af heimilunum dauðum?


mbl.is Álögur á eldsneyti og áfengi hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilin fá skellinn - what else is new?

Ég skal bara segja það eins oft og þurfa þykir:
Hver heldur Steingrímur að haldi uppi "ríkinu" þegar búið er að setja millistéttina út úr jöfnunni? AGS?
Hann og Jóhanna og hinir álfarnir á Alþingi?
Þetta verður fyrsta - og síðasta - tilraun í veröldinni, til þess að reka hagkerfi án millistéttar.
Hlunkist nú til að taka þessa verðbólguvísitölu úr sambandi, þó ekki sé nema tímabundið, á meðan heimilin berjast í bökkum við að eiga fyrir mat, hvað þá bensíni og búsi.
Það gengur einfaldlega ekki upp að ætla að hækka skuldir fólks núna og það á þennan líka lúalega hátt, að sjálfvirk hækkun lána fylgi þessari nýjustu hækkun neysluverðs.
Hvert er ykkar markmið, gott fólk? Að ganga af heimilunum dauðum?

mbl.is Ríkið fær 2,7 milljarða - lánin hækka um 8 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HÆTTULEGASTA KONA Í HEIMI

Ég tók 13.7 milljónir að íbúðarláni fyrir 2 árum – í myntkörfu.
Átti yfir 30% eigið fé, sem var minn lífeyrir.
Gat mjög vel staðið við afborganir og hafði verið vöruð við því að gengið gæti lækkað um 20%. Gat líka staðið undir þeirri hækkun.
Síðast þegar ég meikaði að reikna út stöðuna, voru þetta um 34 millur og gengið hefur lækkað síðan, það lækkar daglega, eins og allir vita.
Gengið hefur sem sé lækkað um tæp 160% síðan ég tók lánið!
Og íbúðarverð lækkað! Fyrir utan að fasteignamarkaður er botnfrosinn.
Íbúðin selst vitanlega ekki næsta áratuginn, en í dag myndi hún seljast á 22 milljónir.
Þá skulda ég ekki “nema” 12 milljónir og svo er tapið á eigið fé - sem ég hef bara ekki möguleika á að endurheimta á neinn hátt.
Og eftir að vera íbúðareigandi í Reykjavík í 30 ár, er ég að lenda í eignaupptöku í þriðja sinn.
Ég endurtek: í þriðja sinn.
Var svo að tala við tvo aðila í dag:
Ráðgjafa í fjármálaráðuneyti, sem er áreiðanlega indælis manneskja og viðkunnanlegan mann í Landsbanka með titilinn: Umboðsmaður viðskiptavina.
Ég er með eitt lán og er ennþá í skilum, en er að koma úr frystingu eftir mánuð.
Miðað við eitt ”úrræðanna” um jafngreiðslu af láninu í eitt ár, plús fasteignagjöld og hússjóð, væri ég að greiða 85% af ráðstöfunartekjum í húsnæði.
Ráðgjafinn í ráðuneytinu sagði að verið væri ”að skoða” vandamál fólks og fyrirtækja með erlend lán og ”vonandi” myndi þeirri skoðun ljúka fyrir haustið. Henni leist illa á tillögu mína um helfrystingu í tvö ár.
Ég vissi jú ekkert um hvernig mér gengi eftir tvö ár.
En eftir tvö ár verður ríkisstjórnin kannski búin ”að skoða” vandamál fólks og fyrirtækja. Við verðum alla vega að ”vona” það.
Umboðsmaður viðskiptavina var sem betur fer ekki með neinar tuggur. Hann sagði bara að ríkið ætti bankana og setti þeim fastar skorður og ekkert væri í boði nema ”úrræðin”.
Hann gaf líka í skyn að verið væri að ýta fólki fram af bjargbrúninni í nokkuð stórum stíl – að verið væri að afskrifa fólk, ekki skuldir þess.
Fórnarkostnaður, er það víst kallað. Þetta er fórnarkostnaðurinn: Ég!
Ég tel þá leið – helfararleiðina – ofboðslega skammsýna. Úr tengslum við raunveruleikann. Ég tel ennfremur að þessi stjórn sitji ekki hérna næstu jól. Þá verða 15 mánuðir frá hruni – núna eru þeir bara átta – og þá verður öllum orðið ljóst að afarkostirnir sem millistéttinni eru settir eru drápsklyfjar. En þegar þriðja stjórn í hruni tekur við, er það bara orðið of seint fyrir tugþúsundir.
Sumir munu fara héðan og láta skeika að sköpuðu.
Einhverjir munu velja að binda endi á líf sitt.
Þeir sem fara, munu lifa við söknuð í hjarta, biturleika og rótleysi.
Þeir sem velja að fara yfir móðuna munu skilja eftir bitra og niðurbrotna ástvini.
Þeir sem velja að vera hér prúðir og þjakaðir og borga – borga – borga fyrir þjófnað óáreittra glæpamanna í boði stjórnvalda, munu von bráðar verða kalnir á hjarta og búnir að missa bæði sakleysi sitt og alla von.
Munu ekki sjá neinn tilgang.
Í átta mánuði hefur mér liðið eins og það hefði verið sparkað í magann á mér. Ég hef upplifað mikinn kvíða – og var þó ekki kvíðinn einstaklingur fyrir.
Nú er ég að verða reið. Rosalega reið.
Það er ekkert betri tilfinning en kvíðinn og síst hollari – þó fylgir henni aðeins meiri kraftur.
Því nú er ég orðin hættulegasta kona í heimi – konan sem hefur engu að tapa.


Gylfaginning enn

,,Gylfi segir að Seðlabankinn sé að hrinda í framkvæmd hugmyndum sem eigi að auðvelda mönnum að ,,fara skipulega með fé" sem þeir eigi í íslenskum íbúðabréfum og ríkisskuldabréfum úr landi. Til að mynda með því að skipta á gjaldeyri og skuldabréfum við fyrirtæki sem séu með tekjur í erlendri mynt."

Enn ein Gylfaginningin?
Fara skipulega með fé? Á við þetta?

,,Leikjaframleiðandinn CCP, sem á og rekur fjölnotendatölvuleikinn EVE Online, hefur ákveðið að nýta heimild SEÐLABANKANS til að gefa út skuldabréf í Bandaríkjadölum gegn láni í íslenskum krónum. Hefur CCP fengið heimild til skuldabréfaúgáfu fyrir 2,5 milljarða króna, en til að byrja með verða bréf að fjárhæð 1,5 milljarðar seld. MP banki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna."

Og hver er eigandi CCP? Nema Björgólfur Thor og þetta er nýjasta þvottavélin hans. Og þegar hann keyrir þetta í þrot, sem hann mun gera, hver haldið þið að standi eftir með reikninginn?
Þið megið geta þrisvar.


mbl.is Krónan veldur vonbrigðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki-frétt Jóhönnu

Jóhanna sagði í "munnlegri" skýrslu um stöðu efnahagsmála að AGS réði EKKI ferðinni í efnahagsmálunum.
Hún sagði ríkisstjórnina EKKI vera að takast á við halla ríkissjóðs til þess að þóknast AGS heldur til þess að leggja EKKI óbærilegar byrðar á komandi kynslóðir.

Bjarni Benediktsson sagði að sú yfirlýsing forsætisráðherra að AGS réði EKKI ferðinni vera til marks um að ríkisstjórnin væri EKKI að ná tökum á stöðunni og að samstarfið við AGS gengi EKKI sem skyldi.

Svo er þetta líka Ef og Þá-frétt:
170 milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs þyrfti að brúa fram til ársins 2013, en Jóhanna sagði að EF áætlanir um aukinn hagvöxt frá lokum næsta árs gengju eftir, ÞÁ myndi sá hagvöxtur skila nærri 70 milljörðum króna upp í þann halla.

Þá er búið að tilkynna öll þessi ekki-tíðindi.
Þarf eitthvað að ræða það meir?


mbl.is Róttækar og erfiðar ákvarðanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættum að borga?

Hvað segið þið? Er greiðsluviljinn jafn einbeittur?
Þeir sem "stjórna" segja að við eigum að borga, en ég heyri fleiri og fleiri raddir um að flýja frá þessu gjörspillta skuldum hlaðna landi.
Og verð að viðurkenna að ég skil - ef ekki styð - alla sem þannig hugsa núna.
Fólk er búið að missa tiltrú. Á kerfið. Á "stjórnvöld". Á yfirlýsingar.
Eða hafið þið tiltrú á að réttlætinu verði fullnægt á Íslandi?
Að einhver verði settur í handjárn?
Að einhver fái fangelsisdóm?
Að eitthvað komi út úr málum hjá opinberum rannsóknaraðilum?

Þetta er úr grein Michael Hudson, The Financial War Against Iceland:
“Iceland is facing a bold con job. Should it feel obliged to pay countries that have no intention of ever paying their own debts? To get paid, creditors must convince their prey to accept the falsehood that debts can and indeed should be paid.
The lie is that they can be paid without dismantling social democracy, selling off the public domain and polarizing society between creditors and debtors.”
“Creditors everywhere else in the world are writing down their claims for payment to reflect plunging property values. Iceland has an opportunity to make itself a model test case for economic justice. What better time to post the basic principle of what is to be saved – an unsupportable debt burden that must collapse in the end, or a society’s survival? Will the government defend its citizens from financial predators, or turn the economy over to them? That is the question.”

Málið er: Við erum ekki bara fórnarlömb vondra kalla í útlöndum. Við erum fórnarlömb okkar eigin fólks, sem semur af sér (af mér!), sem stelur og svíkur og ullar svo framan í okkur og segir að okkur komi það ekki við - eða hafið þið heyrt frasann "bankaleynd"?!
Við erum fórnarlömb fólks sem svífst einskis og sem fyrirlítur okkur - þótt við séum nógu góð til að borga undir það líf í lystisemdum.
Okkar eigið fólk hefur engan áhuga á því að þjóðfélagið - millistéttin - lifi af. Sem má sjá af því, að hér á að gera tilraun til að reka hagkerfi án millistéttar. Nú myndi ég hlæja ef ég væri ekki dauð!
Þessu verður að breyta - núna - annars verður hér ekkert hagkerfi til að rústa - engin líf til að skerða.


mbl.is Vaxtastefnunni hafi verið lýst í viljayfirlýsingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haltu kjafti og borgaðu!

Vitanlega á að sækja þá til saka sem “báru ábyrgð” en voru uppteknir við að ljúga um stöðuna hér og erlendis.
Ég skal mæta persónulega til þess að vera við aftökuna.
FYRST vil ég þó sjá okkur hólpin - okkur sem er sagt að halda kjafti og borga. Hvernig má það verða?
1. Með því að bíða eftir að stjórnvöld “bjargi” okkur?
2. Með því að bjarga okkur sjálf?
Ef svarið er 1, þá er bara að bíða rólegur og ekki síst þægur.
Ef svarið er 2, erum við þá menn til að fara að gera kröfur?
Kröfur um jafnrétti, frelsi, gegnsæi, trúverðugleika?
Heiðarleika í viðskiptum. Og almenn mannréttindi.
Getum við það - eða erum við of kúguð og aum?
Við höfum vald - þorum við að beita því?
Eða erum við (sauð)fé í leit að hirði?
mbl.is Áætlun ef bankar færu í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband