17.3.2009 | 21:30
Refsiengillinn Lisbeth Salander alin upp á Íslandi
Noomi Rapace, sem hét áður Noomi Norén, kveðst reyndar vera alin upp á Íslandi og eiga íslenskan stjúpföður! Það er Noomi sem leikur refsiengilinn Lisbeth Salander, eina litríkustu andhetju sem ég hef kynnst.
Eins og segir í fyrstu bókinni: ,,Hún leit út eins og hún væri nýstigin upp úr vikulangri orgíu með suddalegustu tegund af rokkurum."
En Lisbeth Salander stendur ekkert í því að vera fórnarlamb, þótt atvik og menn hafi leikið hana grátt. Hún er full af ískaldri reiði og vílar ekki fyrir sér að hefna sín, þegar og þar sem því verður við komið.
Verst að þurfa að bíða í heilt ár eftir að sjá Noomi í Stúlkan sem lék sér að eldinum.
![]() |
Norðurlandabúar flykkjast á norræna sakamálamynd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2009 | 14:23
Icesave-þjófnaður lendir á þjóðinni
Er nú ekki dálítið vandséð hvernig þjóðarbúið eigi að ráða við slíka blóðtöku? Þeir sem eru að fara eru langt frá því allir atvinnulausir, þeir eru einfaldlega fólk sem er ekki tilbúið til þess að taka stórfelldum skerðingum á grunnþjónustu, í viðbót við síhækkandi álögur hins opinbera, í viðbót við Iceslave-skuldirnar (hvað varð eiginlega um allar þær hundruðir milljóna sem ryksugaðar voru út af þessum innlánsreikningum?), í viðbót við fréttir um að bankarnir afskrifi sex þúsund milljarða, nema "traustu" skuldirnar, sem eru húsnæðislánin okkar!
Steingrímur og Jóhanna, spáið í eitt: Ef þið gerið ekkert fyrir þá sem nú skulda tvöfalda þá upphæð sem þeir tóku að láni (gengislán) og þá sem sjá lánið hækka mánaðarlega í verðbólgunni (verðtryggð lán) - þá horfið þið fram á að lítill hluti þessara lána fáist innheimt. Þeir sem ekki verða farnir munu einfaldlega hætta að borga, þótt þeir nái að skrimta eins og er.
Því "þjóðarbúið" - það erum við. Og við höfum valið milli pestar og kóleru: Skuldafangelsi - eða landflótti.
![]() |
20% niðurfærsla 1.200 milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.2.2009 | 13:28
To Sir, with love!
![]() |
Málþing til heiðurs Jóni Baldvin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2009 | 17:03
Sniðugt að læsa hlöðunni núna...
Þetta yfirklór verður birt - á síðu 37, undir skipafréttum.
Glæsileg frammistaða misskilins manns.
Hver verður næstur til að misskilja hann?
Við bíðum í ofvæni.
![]() |
Forseti Íslands sendir yfirlýsingu til þýskra fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.2.2009 | 13:21
Áfallasvigrúm, takk!
Í guðanna bænum, viltu gefa þjóðinni áfallasvigrúm.
Þú mátt ekki opna munninn án þess að verða að athlægi (og taka okkur með í leiðinni), eða vekja grunsemdir um óreiðu, illvilja og úlfúð annarra þjóða.
Ég ætlast til þess að ofan á allar hörmungarnar undanfarið, sért þú ekki að bæta á þær með óábyrgu blaðri! Ég þarf að fá lebensraum til þess að vinna mig út úr skítahaugnum - ekki kæfa okkur í skítnum sem vellur upp úr þér. Plís.
![]() |
Viðtalið tekið úr samhengi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.1.2009 | 18:08
Vargöld
Ég lifi á vargöld, í falskri veröld. Það eru 14 vikur frá hruni og nokkrar staðreyndir blasa við: Ég og við sem erum þjóðin eigum að borga milljarðaskuldir fjárglæframanna og þjófa. Við eigum að borga, en megum ekki kjósa upp á nýtt, þótt ekki væri til annars en að losna við þá gegnsýrðu spillingu sem nú er komin upp á yfirborðið í allri stjórnsýslunni.
Svo ég lifi í falskri veröld, haganlega gerðri fölsun, þar sem göturnar heita það sama og þær gerðu og enn er sama fólk við völd og í því sem gaf sig út fyrir að vera réttarríki, en er það ekki. Sá grundvöllur sem þjóðin taldi sig standa á reyndist botnlaust kviksyndi. Heimsmyndin var reist á skammarlegu óréttlæti. Og nú á að bæta á það. Unglingar eru handjárnaðir á Austurvelli. Piparúða sprautað í augu tíu ára krakka. Fimm prósent íbúa Árborgar verða handteknir vegna skulda. Innan árs verður stærstur hluti almennings eignalaus auk þess að skulda ríki og fjármálastofnunum það sem út af stendur eftir nauðungaruppboð á íbúðarhúsnæði. Stjórnvöld eru ekki staðföst nema í einu: Stórfelldum lífskjaraskerðingum og höfnun á því að koma með úrræði til bjargar heimilunum. Þau bjóða hausverkjapillu þegar blæðir úr slagæð. Þeim hefur ævinlega lánast að halda okkur við árarnar á þjóðargaleiðunni og telja víst að svo verði einnig nú að kannski föttum við ekki, við sem erum þjóðin, að landinu var stolið frá okkur. Þau treysta á, að við sem erum þjóðin séum háð því að vera hérna, í baslinu, spillingunni og valdníðslunni. En því ekki að ganga eins langt og plankinn leyfir, sérstaklega þegar menn hafa vanið þjóð sína á það að til stjórnvalda megi ekki gera minnstu kröfur, siðferðislegar eða aðrar. Stjórnvöld vita að þau eru einungis að vinna fyrir sjálf sig, skara eld að eigin köku, þau álíta bara að þú vitir það ekki, já þú, sem ert þjóðin. Enda miðar eina viðleitnin sem stjórnvöld sýna að því, að þú uppgötvir ekki þessa staðreynd. Þau lifa heldur ekki í vellystingum áfram án okkar sem erum þjóðin. Stjórnvöld ætla að þvinga þjóðina til þess að skipta við sig og sjálf að ráða öllum skilmálum, vegna þess að þau halda að við sem erum þjóðin eigum engra kosta völ. Það er þar sem þau flaska á því. Því nú rís þjóðin úr sinni andlegu öskustó og hættir að krefjast breytinga hún knýr þær fram. Hún stendur með sjálfri sér í stað þess að trúa því sem vellur upp úr þeim sem hagsmuni hafa af því að láta okkur borga skuldir óreiðumanna, en hindra að misferli þeirra verði rannsakað; þeirra sem finnst svo sem í lagi að við mótmælum, en segja okkur að við megum samt alls ekki kjósa.
Látum ekki úrræðaleysi stjórnvalda né eigin þrælslund segja okkur fyrir verkum lengur. Það er deginum ljósara að ráðherrar og aðrir sem eitthvað hefðu getað gert til að gera Ísland að betra landi ætla ekki að gera neitt, ekkert nema hefta og skerða, allt og alla nema sjálfa sig. Þjóðfélagið er helsjúkt af spillingu, en við sem erum þjóðin erum það ekki. Við eigum nú um tvennt að velja: Endurreisn með algjörlega nýju fólki í öllum valdastöðum stjórnsýslunnar eða bregðast væntingum stjórnvalda og fara af Þrælaeyjunni sem fyrst fara til frambúðar.
![]() |
Þjóðin var í Alþingisgarðinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2009 | 23:46
Hjálpum þeim!
Getum við tekið að okkur þessi fjögur munaðarlausu börn sem sagt var frá í kvöld? Fjögur smábörn sem sátu í fjóra daga við hlið mæðra sinna látinna.
Ég veit að fjögur börn eru dropi í hafið, en það væri byrjun.
Þau gætu öðlast þolanlegt líf hérna, sem þau geta ekki heima hjá sér.
Hvað er hægt að gera fyrir þau?
Við getum ekki setið hjá og horft á þau skotin í tætlur líkams- og sálarlega.
Ef við tökum þessi fjögur börn að okkur, koma aðrar þjóðir á eftir.
Einhvers staðar verðum við að byrja að sinna okkar smæstu bræðrum.
![]() |
Neyðarsöfnun fyrir Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.12.2008 | 18:13
Hvað er að?
Hvað er að, þegar þjóð er ögrað til þess að mótmæla stjórn ógnar og aðgerðaleysis?
Hvað er að þegar fólk sér enga aðra leið en að flýja land?
Hvað er að þegar milljónafólkið hunsar allar kröfur samfélagsins?
Hvað er að þegar stjórnarvöld ætla að halda áfram að segja þjóðinni
að hrunið komi ekki þeim við sem voru að fá reikninginn?
Og hvað er að, þegar svona krakkar eru beitt hryðjuverkalöggjöf - af löggunni í eigin fokking landi!
Eftir að vinsæll þáttur boðaði samspillingarformenn Íslands til þess að halda framboðsræður, niðri á Austurvelli! Var ekkert hægt að finna fáfarnari stað?
Mikið er ég stolt af ykkur, ykkur sem börðu gluggana utan og kölluðu: Lýðræði, ekkert kjaftæði!
Þið eruð þjóðin.
Guð varðveiti Ísland.
![]() |
Gas Gas Gas á gamlársdag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.12.2008 | 18:39
Um að gera!
Já, endilega senda bara DG og Ingibjörgu í aðra ímyndarherferð, til þess að ,,endurbyggja efnahagslíf sitt, ímynd og trúverðugleika Íslands í viðskiptum um Evrópu og heim allan."
Það verður þeim létt verk og löðurmannlegt - ef einhver vogar sér að vera með gagnrýnisraddir, taka þau bara Sigurð Einarsson með sér aftur, til þess að segja þeim hinum sama að hann sé asni og fífl - aftur.
Það er nefnilega gersamlega ástæðulaust að endurbyggja sömu ímynd og trúverðugleika í heimalandinu, hvað þá efnahagslífið þar, því allir vita að bankarnir og ríkið eiga okkur, börnin okkar og barnabörnin og allar okkar unaðslegu vinnustundir - og hvað sem við þrælum, sökkvum við bara dýpra í dýið.
![]() |
Markaðsvirði íslensks hlutabréfamarkaðar hríðfellur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.12.2008 | 11:17
Að fara eða vera
Það verður mikil eftirsjá að hverjum þeim sem flýgur utan og eru - hvort sem þeir vita það eða ekki - að fara alfarnir.
Annars vegar veit ég að allt verður ennþá erfiðara fyrir okkur sem heima sitjum -
hins vegar skil ég þá vel og styð þá í sinni ákvörðun.
Lítum fyrst á kosti þess að búa á Norðurlöndum:
Það er hægt að lifa af einni vinnu, jafnvel þótt hún sé á kassa eða við skúringar.
Allar heimsóknir til heimilislækna eru ókeypis.
Skólabækur eru ókeypis, upp allan menntaskólann.
Þú veist á hvaða kjörum þú tekur fasteignalánið þitt.
Og þú býrð við stöðugan gjaldmiðil.
Þessi listi er ekki tæmandi.
Svo ókostir: Þú býrð ekki á Íslandi lengur og þar eru fjölskyldan og einhverjir vinanna.
Þú missir af erfiðu uppbyggingarferli næstu áratugina.
Þú nærð ekki að upplifa mennta-, heilbrigðis- og velferðarkerfi verða ennþá lélegra en nú er.
Börnin þín munu ekki alast upp við veruleika þrælsins.
Leggjum nú kosti og ókosti á vogarskálarnar.
Þá virðast skúringar á Norðurlöndum og 35 tíma vinnuvikan þar allt í einu ekkert svo fráleit.
Því það er búið að veðsetja allt okkar og okkur öll til andskotans.
![]() |
Íslendingar stefna til Noregs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |