Fréttaskot, frú Jóhanna!

Sæl, Jóhanna.

Þú segir að stjórnvöldin þín hafi gert „50 mismunandi úrræði skuldugra heimila að veruleika“ fyrir fólkið sem greiðir launin
þín og fleiri á Alþingi, til 30 ára.
Ég heiti Þórdís og ég er (því miður) þegn í ríkinu þínu.
Einn þeirra þegna sem fæ ekki skuldaleiðréttingu – af því ég á ekki nógan pening til þess að borga hærri upphæðina, sem er tæplega þreföld sú upphæð sem ég tók að láni 2007. (!)
Ég er búin að þrauka þetta í tæp tvö ár, alveg eins og 90% af öllum hinum þegnunum.
Og ekkert sérstaklega mikið þrauk eftir hjá mér þegar hér er komið sögu.
Því þú hefur svo sannarlega ekki komið til móts við skuldavanda "minn".
Þvert á móti hefurðu leyft the ususal suspects að halda áfram að ræna mig.
Blygðunarlaust, á hverjum einasta degi síðan þú tókst við.
Það eru eitthvað um 500 dagar.
Nú er ég viss um að þú dæsir, hallar þér svo á hina hliðina og hugsar:
Það er ekki hægt að bjarga öllum.

Því á einhvern hátt býrðu í fílabeinsturni.
Það heyrir maður á flestu sem þú segir og gerir.
Þegar þú segir eitthvað og gerir.

Svo er haft eftir þér, sem tekur algerlega kökuna:
,,Útgjöld ríkisins vegna lækkun dráttarvaxta og greiðslu séreignasparnaðar (auk hækkun vaxtabóta) nemi allt að 50 milljörðum króna úr ríkiskassanum.“

Hérna er fréttaskot, frú Jóhanna:
Greiðsla séreignasparnaðar var LÁNUÐ til ríkisins. Þetta er EKKI gjöf frá ríkinu.
Og lækkun dráttarvaxta er sjálfsögð leiðrétting, heldur ekki gjöf frá „ríkinu“.
Því ríkið – það erum við. Við sem drögum vagninn. 
Mig langar að sjá, að þeir sem ráða örlögum mínum hafi grundvallaratriði á hreinu.
Að þeir sýni mér þá sjálfsögðu kurteisi að tala ekki til mín eins og fæðingarhálfvita.
Þeir ætlast jú til þess að ég borgi launin þeirra og skuldirnar þeirra – gott ef ég á ekki bara að taka syndir þeirra á mig.
Og ef ég á að nenna því áfram, þá vil ég t.d. ekki að þeir vogi sér að telja mér – né öðrum – trú um að þeir séu að „gefa“ 50 milljarða úr ríkiskassanum. Því svo er ekki.
Því svo er ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband