Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Beið færis?

Beið Katie eftir því að Tom væri í 4.200 km fjarlægð?
Var það þá fyrst sem hún þorði?
mbl.is Katie var komin með leyniíbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmigert úrræði kúgaðrar konu

Fyrir 2 árum las ég þriggja síðna grein um vanda Katie í hjónabandinu. Að henni væri stjórnað harðri hendi af Tom og trú hans á kreddur Vísindakirkjunnar.
Að Katie væri sem skuggi af sjálfri sér og fengi m.a. ekki að taka að sér hlutverk, þá sjaldan þau byðust.
Stemmi eitthvað af þessu, þá er dæmigert fyrir kúgaða konu að finna fyrst hugrekkið til að skilja, þegar húsbóndinn er víðs fjarri.
Allt snakk um að forsíðan á W hafi verið dropinn, eða þá afmælishald á Íslandi, hljómar eins og fyrirsláttur.
Hins vegar ætla ég að benda Júlíusi ljósmyndara á að selja myndirnar til Daily Mail eða annarra sem borga vel - þeir nefna einmitt Íslandsfund þeirra í blaðinu í dag ;)

How Katie filed for divorce 'after becoming sick of controlling Tom'... but THAT raunchy magazine cover was the final straw
Mission Impossible star 'deeply saddened' by wife's decision to end union
Couple led separate lives in recent months, with Katie refusing to join him on Rock of Ages promotional tour
Katie felt 'like a robot'
Couple seen holding hands in Iceland VERY recently
http://www.dailymail.co.uk/tvshowbiz/article-2166822/How-Katie-filed-divorce-sick-controlling-Tom--THAT-raunchy-magazine-cover-final-straw.html#ixzz1zGltJ0LV


mbl.is Tom Cruise sagður niðurbrotinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nora og Watergate

Nora var gift Carl Bernstein, blaðamanni hjá Washington Post, sem ásamt Bob Woodward fletti ofan af Watergate-hneykslinu með "All the President's Men".
Bókin Heartburn eftir Noru, sem varð að mynd með Jack Nicholson og Meryl Streep, fjallar um líf þeirra saman. Hefst á því að Nora er komin 8 og 1/2 mánuð á leið með annað barn þeirra þegar hún kemst að því að Bernstein heldur framhjá.
Bernstein hótaði vitanlega að fara í mál, eins og alltaf gerist þegar maður gefur út bók um strandað samband við menn sem hafa tengsl við fjórða valdið. Ekki varð þó úr málaferlum - enda er víst í Ameríku allt í lagi að segja eitthvað misjafnt um fólk - á við að það haldi framhjá - ef það er sannleikanum samkvæmt.
Væri ekki sniðugt að búa í þannig veröld?
mbl.is Nora Ephron látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

svívirðilega flottar

Ég var í Landsbanka Austurstræti örskömmu eftir hrun, ásamt blaðamanni frá BBC. Við vorum nú ekki að taka sporið, heldur tala og ganga um þarna inni, í mínu útibúi til áratuga.
Einn þessara rykföllnu varða vísaði okkur á dyr. Ég vildi fara, fremur en að vera fleygt í dýflissu fyrir eitthvað sem diktað yrði upp. Þegar við komum út var þessi maður búinn að missa alla trú á mér. Hann sagði: Af hverju eruð þið ekki búin að brjóta allar rúður í þessu húsi? Ata það aur og málningu?
Eruð þið aumingjar hérna?
(leyfum þessu að standa aðeins)
mbl.is Mótmæla með flamenkódansi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegt

Tók fyrst eftir Pálu þegar ég sá hvað bókaúrvalið á Seltjarnarnesi var gott, t.d. í nýju erlendu efni.
Átti síðar hin ýmsustu samskipti við hana og veit því hvað hún er rösk og skemmtileg.
Óska Pálu og borginni til hamingju hvor með aðra ;)
mbl.is Ráðin borgarbókavörður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fínt, eða...?

Má segja upphátt að manni finnist svona pró-aktív lögga bara fínasta mál? Fólk er í sárum eftir innbrotahrinu. Fyrst hann játar, eða neitar allavega ekki, þá er fínt að hann er kominn á stað þar sem kannski rennur af honum og hægt er að yfirheyra hann.
Jei, löggan
mbl.is Hefur hlotið 11 refsidóma frá 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðvirkni með einelti

Meðvirkni þeirra sem eru vitni að einelti gagnvart öðrum, er stór hluti af því að viðhalda einelti.
Svo eru fordómarnir skilgetið systkini meðvirkninnar.
Komu t.d mjög berlega í ljós v. barsmíðar öryggisvarðar á Hlemmi um daginn. Þvílíkt sem fólk afsakaði öryggisvörðinn, þetta væri jú svo ömurlegt starf, alls konar aumingjar að bögga mann.
Hér er meira um fordómana, klausan er eftir Kolbrúnu Baldursdóttur sálfræðing og er frá 21. maí 2010:

Fordóma gætir enn í garð þeirra sem segjast vera þolendur eineltis. Fordómarnir lýsa sér t.d. þannig að fólk sem jafnvel þekkir lítið eða ekkert til málsatvika hefur tilhneigingu til að álykta að sökin sé þolandans.
Þolandinn endurspeglar fordómana með því að upplifa skömm og sektarkennd.
Fordómar í garð þolandans geta skýrt af hverju vandamál af þessu tagi hefur tilhneigingu til að vera falið. Þolandinn álítur að það kunni að stríða gegn hagsmunum hans ef eineltið fréttist. Hann óttast að vera álitinn vandræðaseggur og með því skerðist möguleikar á seinni tíma ráðningu. Ef ástandið er viðvarandi og ekki útlit fyrir að taka eigi á málunum er líklegt að þolandinn verði auðsæranlegur og gefi frekar á sér höggstað eða geri mistök í starfi.

Afleiðingar eineltis eru kunnar. Ef þolandinn er látinn fara eða telur sig knúinn til að yfirgefa vinnustaðinn, lengist bataferillinn.
Auk þess sem hann hefur misst atvinnu sína er þolandi fullur efasemdar um sjálfan sig. Í raun velta örlög hans hvað mest á persónustyrk hans, stuðningi fjölskyldu og þeirri trú að honum sé ekki alls varnað.


Til hamingju!

Sola og Dhani eru fallegt par, sem giftu sig að Friar Park, sveitasetri Harrison-fjölskyldunnar við Henley-on-Thames, sem er um 40 mílur fyrir vestan London.
Rosalega væri svo gaman að sjá mynd af Sólveigu í brúðarkjólnum!
mbl.is Sólveig og Bítilssonurinn gift
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að opna á þetta mál...

...það ER nefnilega algengt.
Ég ræddi annað afbrigði af einelti við Thelmu Ásdísardóttur, ráðgjafa hjá Drekaslóð, Fræðslu- og þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Thelma sagði mér frá einelti innan fjölskyldna og þetta er magnaður lestur, því eins og Thelma segir: Fólk sem elst upp við svona aðstæður er allt sitt líf að glíma við sígildar afleiðingar ofbeldis: Brotna sjálfsmynd, gríðarlega skömm, mikla sektarkennd, oft mikla reiði, mikla höfnunartilfinningu og ofboðslega sorg.

,,Í fyrsta lagi eru þessi mál mun fleiri en ég bjóst við, áður en við opnuðum Drekaslóð. Ég hafði giskað á að flest eineltismál væru framin í æsku og þá oftast innan skóla. Þau mál sem við höfum þó fengið flest af, eru eineltismál innan fjölskyldna og þá sést gjarnan eftirfarandi mynstur:
Algeng uppsetning er að einhver einn úr systkinahópi er tekinn fyrir. Oft er einn sem leiðir, er aðalgerandi og virki aðilinn í ofbeldinu. Það er sá sem hefur frumkvæðið, gefur hinum leyfið og beitir harðasta ofbeldinu, hvort sem er andlegu eða líkamlegu. Síðan eru einn eða fleiri, sem eru sterkir fylgjendur. Þeir fylgja aðalgeranda og samþykkja hérumbil allt sem frá honum eða henni kemur. Þeir eiga sjaldnast frumkvæði að ofbeldinu, en taka þó virkan þátt í öllu sem aðalofbeldismaðurinn gerir, hvetja hann og eru virkir.
Svo eru þeir sem samþykkja ofbeldið með því að gera og segja ekki neitt. Þeir taka ekki beinan þátt, en standa hjá og horfa og koma ekki þolanda til bjargar eða varnar. Með því að þeir horfa og hlusta á ofbeldið, án þess að andmæla því, upplifir þolandinn auðvitað þennan hóp innan fjölskyldunnar sem hluta af ofbeldinu.“
Thelma segist trúa því, að fólk sem stendur svona hjá og fylgist í rólegheitum með ofbeldi, geri það af ótta. ,,Það óttast að ef það stigi fram og verji þolandann, lendi það í sömu aðstæðum og hann. Við sjáum í splundruðum fjölskyldum, að þeir sem taka málstað þolandans eru gjarnan úthrópaðir líka. Svo er mjög sterkt í okkur að vera hluti af heild. Óttinn við að vera settur út í kuldann er rosalegur. Þá er auðveldara að gera ekki neitt og horfa bara á, jafnvel þótt það þýði að horfa upp á aðra þjást. Auðveldara að loka augunum, fara í afneitun og finna aðrar, þægilegri skýringar, heldur en að stíga fram og viðurkenna að eitthvað hafi verið að; eitthvað þurfi að endurskoða; viðurkenna mistök. Auðvitað koma líka til okkar mál þar sem fólk er hugrakkt; tekur á málum og vinnur með þolanda, en hitt sjáum við gerast allt of oft. Meira að segja hefur fólk sem opnaði kynferðisofbeldi innan fjölskyldu og fékk mjög harkaleg viðbrögð, dregið sögu sína til baka og sagst hafa verið að ljúga, bara til að fá að vera inni í fjölskyldunni áfram.
Við erum félagsverur og þegar við erum lítil, þurfum við á því að halda að tilheyra og það tel ég jafn mikilvægt fyrir börn og að hafa næga fæðu og þak yfir höfuðið. Börn verða að vita að þau séu elskuð, samþykkt og eigi öruggt skjól, en börn sem eru tekin svona fyrir í einelti innan fjölskyldna, fá aldrei þá vissu. Einstaklingar sem alast upp við svona aðstæður eru oft allt sitt líf að reyna að fá viðurkenningu og þá helst frá foreldrunum.
Ef við tökum dæmigerða einræðisherrafjölskyldu, eins og mína, þar sem er einn mjög sterkur einstaklingur sem beitir alla í fjölskyldunni ofbeldi, þá eru allir fjölskyldumeðlimir í þeirri stöðu að lifa af. Jafnvel þó að mamma hafi séð ýmislegt hræðilegt gerast, þá hafði hún ekki bolmagn til að standa gegn honum. Ógnin er svo ofboðsleg og að búa við stöðuga ógn getur dregið kjark og mátt úr besta fólki. Á hinn bóginn er svo auðvelt fyrir þá sem ekki eru í þessum aðstæðum að segja: „Ég hefði nú brugðist svona við,“ – og dæma þá sem ekki gera það.“

Hvernig lýsir sjálft eineltið sér innan fjölskyldu?
,,Oftast er það þannig að annað foreldrið hæðist að barninu, kúgar það og niðurlægir og það hefur augljóslega ekki sömu réttindi og hin börnin. Það býr ekki við sama aðbúnað, fær ekki sömu uppörvun og ekki sömu möguleika á íþróttaiðkun eða tómstundum. Varðandi hið efnislega fær það greinilega ódýrari gjafir en systkini sín. Oft er þetta það lúmskt, að barnið sjálft á gríðarlega erfitt með að greina það. Það einfaldlega upplifir sig síðra og lélegra og telur þetta eðlileg viðbrögð foreldra við því að það sé eitthvað að því sjálfu. Það fer oft að keppast við að standa sig betur til að fá hrós og viðurkenningu frá foreldrunum, en hin systkinin „læra“ og alast upp við, að þetta barn sé lélegra en þau hin. Þannig er búið að gefa veiðileyfi á þetta eina barn og normið í fjölskyldunni verður, að þetta eina barn er lagt í einelti af öllum hinum. Það sem við sjáum síðan oft gerast, er að þetta smitast út í stórfjölskylduna. Svona börn sýna vitanlega afleiðingar og fara kannski að sýna alls konar hegðun, til að fá athygli og viðurkenningu eða til að verja sig. Þarna er þetta barn komið í þá aðstöðu að reyna að lifa af erfiða æsku. Hegðun þess er stundum neikvæð, þannig að þeir sem hófu eineltið, telja sig þar hafa fengið staðfestingu: Auðvitað er eitthvað að krakkanum! Þar með er hægt að segja: Hún hefur alltaf verið skrýtin, eða hann hefur alltaf verið klikkaður. ,,Já, auðvitað fór hann í neyslu; við vissum alltaf að það var eitthvað að honum,“ – þegar barnið er kannski bara að sýna viðbrögð við eineltinu og ofbeldinu. Þetta eina barn, sem jafnvel frá unga aldri hefur verið beitt andlegu ofbeldi og stundum líkamlegu – oft á þann hátt að líkamlegt ofbeldi af hendi hinna systkinanna, er liðið – þetta barn trúir því sjálft, jafnvel fram á fullorðinsár, að eineltið hafi verið vegna þess að það var eitthvað að því sjálfu.
Eftir að þetta smitast út í stórfjölskylduna, verður það viðurkennt viðhorf, að eitthvað sé „að“ þessari einu manneskju. Þá er henni ýtt til hliðar, hún er jafnvel álitin geðveik og nýtur ekki sömu réttinda innan fjölskyldunnar. Ég hef oft séð slíkan einstakling hlunnfarinn og sniðgenginn um réttmætan arf. Vissulega finnst flestum erfitt að fara að láta í sér heyra út af peningum – en þetta snýst ekki um upphæðir, heldur óréttlæti. Líka óréttlætið sem felst í því að vera settur út úr hópnum og allt að því brennimerktur. Fólk sem elst upp við svona aðstæður er allt sitt líf að glíma við allar sígildar afleiðingar ofbeldis: Brotna sjálfsmynd, gríðarlega skömm, mikla sektarkennd, oft mikla reiði, mikla höfnunartilfinningu og ofboðslega sorg. Svo er spurningin hvað maður gerir við sterkar tilfinningar eins og þessa reiði. Hættan er sú að hún fari í eitthvað mjög lítt uppbyggilegt, ef fólk vinnur ekki með hana.“


mbl.is Einelti spyr ekki um stöðu fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr, heyr

Sjálfsagt að stjórnvöld hlutist til um að þýfinu verði skilað til fólksins. Tími til kominn - fyrir löngu.
En eins og endranær á Íslandi, þora fæstir að tala um þetta upphátt - því fólk er hrætt við að verða fyrir enn meira einelti ef það fer að stuða þá sem ráða - í bönkum og öðrum valdastofnunum.
mbl.is Harmar lúalega aðför stjórnvalda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband