31.12.2009 | 12:09
Frestur er á illu beztur
Ég myndi heldur ekki þora að staðfesta Icesave-lögin í dag, miðað við stemninguna í samfélaginu, miðað við að í kvöld er mesta drykkjukvöld ársins og það á fullu tungli og miðað við óvinsældir bæði flutningsmanna frumvarpsins og forsetans sjálfs.
Þetta er miklu sniðugri aðferð og þjóðlegri, svona í anda Þorgeirs Ljósvetningagoða, sem þó líka gafst upp fyrir "yfirvaldinu" eftir sína yfirlegu. Með þessum fresti sem forseti var svo kænn að kaupa sér, vinnst tími til að nota nýársávarpið í að réttlæta sig og sína - þótt einungis örfáir munu kaupa þann hvítþvott. Og vitanlega frestur til að láta skrifa einhverja mærðarútskýringu, þar sem orðin "alþjóðasamfélagið" og "axla ábyrgð" - að ógleymdum "horfa fram á veginn" munu koma fyrir.
Forseti tekur sér frest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Íslenski þrælinn stígur ekki í vitið, og það sama má nú segja um flesta kjósendur VG. Sá FL-okkur hefur aldrei gáfulegar lausnir fram að færa, í raun bara drasl. Samspillingin er svo bara stórhættulegur EB flokkur. Formaður VG talaði allt öðru vísi fyrir hrun, en snérist svo eins og VINDHANNI 360 gráður, í flest öllum málum, það er afrek út af fyrir sig. Þjóðin & alþingi hefur sýnt fram á vilja í sumar að við viljum greiða tengt Icesave þó okkur beri í raun ekki lagaleg skylda til þess, þá viljum við axla "pólitíska & siðferðislega ábyrgð á okkar glæpamönnum" - en SteinFREÐUR & Svavar sömdu svo illa af sér að hér verður "frostavetur næstu 20 árin með tilheyrandi fátæk" - svo kalla þessir aular sig "Norræna velferðastjórn" - klækastjórn hjá vinstri mönnum, það liggur við að maður æli, aulaskapur þessa liðs er ótrúlegur. Þráinn Bertelsson talaði um fyrir rúmu ári síðan að það væri aumingjarskapur hjá ríkisstjórninni að vera á hjánum fyrir nýlenduveldum UK & Hollendinga. Svo segir hann nú (á hnjánum) að lengra verði ekki komist. Þetta lið er óborganlegt og leiksýningar þær sem þeir setja upp á alþingi eru yfirleit til háborinnar skammar.
Óli grís kan "klækastjórnmál & lýðskrum" enda vinstri maður í húð & hár. Óli var UMBOÐSMAÐUR útrásarskúrkanna og það fer vel á því að maður með "skítlegt eðli" samþykki þessi (ó)lög, gegn 70% vilja þjóðarinnar, það er ekki gjá, bilið er of stórt til að vera gjá, í raun bara "himinn & haf milli þings & þjóðar" enda skilur ekki þjóðin þá ÖMURLEGU verkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS í þessu skelfilega máli. Geta íslenskra stjórnmálamanna er til skammar, ef þetta lið væri að vinna fyrir einkafyrirtæki þá væri búið að reka það á staðnum. Óli grís á að SAMEINA þjóðina, en leppalúði er snillingur í að SUNDRA þjóðinni. Ég segi nú bara um okkar skítapakk - sorry - okkar stjórnmálamenn "helvítis fukking fukk".
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
Jakob Þór Haraldsson, 31.12.2009 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.