28.11.2007 | 22:35
KÆFIÐ KVENLUND MÍNA!
Er ekki allt í lagi? Verðum við núna að neita því, í nafni kol-brenglaðs rétttrúnaðar, að Guð skapaði tvö kyn, karl og konu? Kol-brún Halldórsdóttir heimtar nú að ,,nýfædd börn séu ekki aðgreind eftir kyni og að þau verði framvegis klædd í hvítt eða aðra kynhlutlausari liti. Nái þessi endaleysa fram að ganga, er þess vitanlega að vænta að allir verði skikkaðir til að ganga í fatnaði sem felur öll merki um hvort viðkomandi er kona eða karl. Maó fékk þessu framgengt og eftirmælin hans eru ekkert sérstaklega eftirsóknarverð, en hér á landi þyrftu femínistar að fara að fatta að kynskipting er hvorki úrelt né meiðandi - hún einfaldlega er. Ef nýburarnir þurfa að vera í kynhlutlausum búningum, hljótum við hin, sem erum þó meira á ferðinni, að þurfa að ganga í búrkum, eins og ánauðugar íslamskar konur - úps, persónur. Því í samræmi við þessa endaleysu, neyðumst við líka til að útrýma karl- og kvenkynsorðum, karl- og kvenmannsnöfnum og karl- og kvenmannsfötum? Hvílík veruleikafirring "feminísks" þankagangs. Hvaða skilaboð gefur það að mega ekki klæða börn sín eftir kyni? Hvað á það að þýða að troða jafnréttisbaráttu inn á nýfædd börn? Að þetta endemis bull skuli koma frá kvenkyns persónu gerir að verkum að ég fer alverlega að íhuga kynskiptiaðgerð.
Ekki meira blátt og bleikt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.